Símtal frá Bretlandi kemur róti á huga hálfíslensks læknis í New York. Hefur Magnús Colin lifað í blekkingu frá barnæsku? Hefur hann aldrei séð foreldra sína í réttu ljósi? Um leið og Magnús þarf að horfast í augu við fortíð sína fær hann til rannsóknar óþekkta konu sem finnst í dái eftir slys á afskekktum vegi. Þegar hann fer að gruna að hún sé með meðvitund en læst inni í eigin líkama vaknar áleitnar spurningar um hver hún er, um hann sjálfan og ekki síst um Malenu, konuna sem hann elskar. Endurkoman er seiðmögnuð skáldsaga um ástina og leitina að hamingjunni, einsemd og söknuð, brotthvarf og endurkomu.